1. |
O
01:33
|
|||
2. |
Upphafið
01:47
|
|||
3. |
Rafeindin
03:39
|
|||
rafeindin skautar hringi á leifturhraða um róteindina og jörðin er kúla á hringferð um sólina á hringferð um vetrarbrautina.
|
||||
4. |
||||
lífið er samansafn hringja þar sem við vöknum og sofnum, vöknum og sofnum, fæðumst og deyjum. fallegustu, ljótustu, ómerkilegustu og mikilvægustu atvik lífsins. minningar sem byrja og enda og byrja og enda. eilíf hringrás augnabliksins, fullkominn feril andartaksins.
(hugsa um þig)
|
||||
5. |
Form
03:03
|
|||
árið er formfast mót og hver dagur er steypuklumpur í steypuklumpamúrverki áranna þetta er lífsins steypusmiðja í sínkverksmiðju í iðnaðarvinnu hér geturðu valið milli tólf hluta þegar þú verður stór einn þeirra er múrari annar þeirra er vatnsberi en allir eru þeir form – form eins og formalín og frauðplast eins og áform um að komast í form eins og bökunarform eins og á nýársdegi nýtt líf eins og ósnortin hugsun eins og óformuð möffins eins og bakaraofn hugarfóstra eins og hugarfóstureyðing undir hálfmána eins og blóði drifið sykurskraut á silkiklæddum dúnkodda eins og dúnkoddi í pakka eins og form eins og beygingar ellegar vitlaus pakki þetta er umbúðalaus gjafmildi í hefndarskyni á jóladag á öðrum í jólum á öfund í jólum á óformuðum á dúnmjúkum jólum undir frauðplasttré við göngum í kringum form uns við deyjum –
|
||||
6. |
Skipholt
08:44
|
|||
þig langaði
bara að klára myndina um austurríska formúlukappann niki lauda og fara svo að sofa en ég náði einhvernveginn að láta þig bjóða mér heim
krafðist þess eiginlega
þú varst að taka úr hvítri vél og dundaðir þér við það
að hengja
upp á snúruna
hvíta boli
hvít rúmlök
og hvíta sokka
síðan fiktaðiru áhugalaus
í hárinu mínu
meðan ég sat þarna upp á einni vélinni
og flautaði sinatra
þegar við lágum uppí rúmi fórstu skyndilega að gráta
og sagðist vera ringluð
mér varð svo brugðið að það eina sem ég gat sagt var
að allir
á plánetunni jörð væru ringlaðir
partur af því að
vera fastur á sísnúandi reikistjörnu
í morgunþögninni drukkum við
kaffi og
lásum stjörnuspánna
fyrsti snjór vetrarins hafði óvænt fallið þessa sömu nótt
og þú
spurðir mig hvort mér þætti veturinn merki um upphaf eða endi og ég sagði að hann
væri einfaldlega ómissandi hluti af tilverunni alveg eins og þú
og ætli það hafi ekki verið akkúrat þá sem ég sá þig brosa í síðasta skipti og stundum þá velti ég því fyrir mér hvort að þetta síðasta bros þitt hafi verið endalokin eða upphafið eða einfaldlega ómissandi partur
af tilverunni
|
Streaming and Download help
If you like Friðrik Margrétar, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp